Achieve Mental Mastery with The Zone Mastery | Elite Athlete Mentorship
image

3ja Mánaða Mental Performance Mentorship Prógram

Hannað af Þreföldum Ólympíufara til að Hjálpa þér að Keppa Full(ur) af Sjálfstrausti undir Pressu og Njóta Hvers Skrefs á Leiðinni

Velkomin(n) í The Zone Mastery, þar sem hámarksárangur mætir hugrænum styrk

Ég heiti Ásdís, leiðbeinandinn þinn á þessari umbreytinga vegferð. Sem þrefaldur Ólympíufari, skil ég virkilega mikilvægi hugræns styrks í að ná stórum markmiðum. Ég veit líka að það er lykilatriði að vinna jafnt og þétt í hugrænni þjálfun, þess vegna hef ég hannað The Zone Mastery til að vera bæði fljótleg og áhrifarík.

Leyfðu mér að sýna þér hvernig aðeins örfáar mínútur af hugrænni þjálfun á dag get gert þér kleift að nýta hæfileika þína til fulls!

Yfirlit Yfir Prógramið
The Zone Mastery er 3ja mánaða mental performance mentorship prógram sérhannað fyrir íþróttafólk sem er tilbúið til að taka árangurinn á næsta stig. Þú færð einkatíma með mér, aðgang að The Zone Academy og sérsniðið æfingaplan sem hentar þínum einstöku þörfum.
Fyrir Hvern Er Það:
Þetta prógram hentar metnaðarfullu íþróttafólki sem er ákveðið í að auka seiglu, hugrænan styrk og bæta árangurinn sinn. Ef þú ert tilbúin(n) til að fjárfesta í þínum vexti og ná frábærum árangri þá er The Zone Mastery fyrir þig.

Ekki sannfærð(ur)?

Sjáðu hvernig ég hef hjálpað öðru íþróttafólki að ná sínum markmiðum ⬇️

Það sem er innifalið:

Mat á Hugrænum Styrk

Uppgötvaðu hugræna styrkleika þína og finndu hvar þú getur bætt þig með mínu yfirgripsmikla mati.

Sérsniðið Hugrænt Æfingaplan

Fáðu sérfræðiráðgjöf til að búa til þitt eigið hugræna æfingaplan, sérsniðið til að bæta þína frammistöðu.

Eftirfylgnitímar

Ég held þér við efnið með reglulegum eftirfylgnitímum þar sem við aðlögum planið og tökumst á við allt sem kemur upp.

Viðurkenndar Aðferðir

Fáðu aðgang að helling af efni sem hannað er til að hjálpa þér að nýta þér hugræna æfingaplanið þitt.

Mánaðarleg Live Q&A

Njóttu beinnar leiðsagnar og stuðnings frá mér, á meðan þú lærir af reynslu annars íþróttafólks.

Stuðningsríkt Samfélag

Vertu hluti af samfélagi íþróttafólks með sama hugarfar, deildu hugmyndum, og fáðu persónulega hjálp þegar þú þarft.
Til að tryggja að ég geti veitt sem bestan stuðning þar að sækja um aðgang að The Zone Mastery.
Svona virkar það:
  • Smelltu á hnappinn og fylltu út umsóknina. Þú þarft að svara nokkrum spurningum um þig, íþróttina þína og hvað þú vilt fá hjálp við.

  • Ég mun fara yfir umsóknina þína og meta hvort þú passir í prógramið og hvort prógramið henti þér. Ef prógramið hentar þér ekki eða þú passar ekki í það mun ég hafa samband og stinga uppá öðrum mögulegum lausnum.

  • Ef þú ert valin(n) þá bókum við tíma til að ræða markmiðin þín, hvernig prógramið getur hjálpað þér og hvort þetta sé eitthvað sem þú vilt fjárfesta í.

Ég hef enn spurningar

Engar áhyggjur!
Hér að neðan finnur þú svör við algengustu spurningunum, en þú getur alltaf sent mér tölvupóst á [email protected]

Hver er munurinn á The Zone Mastery og The Zone Academy?

Í The Zone Academy færð þú aðgang að öllum þeim upplýsingum sem þú þarft til að búa til þitt eigið hugræna æfingaplan. The Zone Mastery veitir mun dýpri stuðning þar sem innifalið í því eru einkatímar með mér þar sem ég bý til hugræna æfingaplanið þitt og fylgi því eftir reglulega í gegnum prógramið.

Hverju má ég búast við í umsóknarferlinu?

Ég mun meta hversu skuldbundin(n) þú ert og markmiðin þín til þess að meta hvort þetta henti þér. Verðir þú fyrir valinu tökum við samtal til að ræða prógramið frekar.

Hvernig er mat á hugrænum styrk framkvæmt?

Matið fer fram með spurningalista sem metur hugræna styrkleika þína og hvað þú getur bætt, þessar upplýsingar notar þú svo til að búa til sérsniðna æfingaplanið þitt. Þú munt fá aðgang að spurningalistanum inni í meðlimasvæðinu.

Hversu mikill tími fer í prógrammið?

Prógrammið er hannað til að passa inn í annasaman daginn þinn. Aðeins nokkrar mínútur af hugrænni þjálfun á dag geta skipt miklu máli.

Er The Zone Mastery hentugt fyrir byrjendur?

The Zone Mastery er hugsað fyrir íþróttafólk sem er í þessu að alvöru og ætlar sér að gera vinnuna sem þarf til að verða betri.

Hvernig er efnið aðgengilegt, og get ég nálgast það hvenær sem er?

Allt efni er aðgengilegt á meðlimasvæðinu á netinu eða í Athletes Zone appinu, hvenær sem er, sem gerir þér kleift að læra á þínum eigin hraða.

Hvað ef ég kemst ekki á live Q&A fundina?

Engar áhyggjur! Þú getur sent spurningar þínar fyrirfram, og ég mun svara þeim á fundinum. Allir live Q&A fundir eru teknir upp og verða svo aðgengilegir inni á meðlimasvæðinu til að horfa á þegar þér hentar.

Hversu fljótt get ég búist við að sjá árangur frá prógramminu?

Allir eru mismunandi, og við byrjum öll á mismunandi stöðum. Þú munt líklega sjá einhverja ávinninga strax, og flestir íþróttamenn taka eftir bætingum í einbeitingu, sjálfstrausti og frammistöðu innan nokkurra vikna af því að æfa sig jafnt og þétt.

Get ég hætt við áskriftina mína hvenær sem er?

Mentorship prógramið er 3ja mánaða skuldbinding. Eftir að prógraminu er lokið getur þú valið um að halda áfram í aðra 3 mánuði og þú munt hafa forgang framyfir nýtt íþróttafólk.

Hvers konar stuðning get ég búist við frá samfélaginu?

The Locker Room samfélagið er stuðningsríkt rými þar sem þú getur tengst öðru íþróttafólki, deilt reynslu og fengið beina leiðsögn frá mér.

Mun þetta virka fyrir mig?

Þó ég geti ekki ábyrgst árangur þá veit ég að því meiri tíma og fyrirhöfn sem þú leggur í þetta, því meiri árangri munt þú ná. Þú munt sjá hlutina skýrar og læra að þekkja þig, þú munt einnig bæta frammistöðu þína bæði sem íþróttamaður og einstaklingur.

Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til þess að taka árangurinn þinn á næsta stig!

Sæktu um aðgang að The Zone mastery og taktu fyrsta skrefið í áttina að því að ná þínum besta árangri
image
image
Frammistöðu Ráðgjafi, Ólympíufari og fyrirlesari
©2025 Annerud Media AB

Vertu í sambandi

image
image
image
image